Stjórnarkjörs- og 35 ára afmælisfundur Jörfa

22.04.2010
Við héldum stjórnarkjörsfund síðasta vetrardag á Grand Hótel, sem jafnframt var 35 ára afmælisfundur  með mökum  og þar kynnti Valur Helgason kjörforseti nýja stjórn sem var lýst réttkjörin.
Við það tækifæri voru félagar sæmdir aldursviðurkenningum,  en í dag eru fjórir af stofnfélögum ennþá félagar í Jörfa. Þá var einum Jörfafélaga veitt silfurstjarna styrktarsjóðs Kiwanis fyrir frábær störf í þágu klúbbsins, en það var Jón Jakob Jóhannesson kjörsvæðisstjóri Eddusvæðis.  Eignkonum okkar var svo þakkaður stuðningurinn í gegn um árin með snoturri  Kiwanis nælu.